KR-ingar unnu öruggan sigur á Þrótti R., 4:0, þegar liðin mættust í deildabikar karla í fótbolta, Lengjubikarnum, í Egilshöllinni í kvöld.
Baldur Sigurðsson og Þorsteinn Már Ragnarsson komu KR-ingum í 2:0 í fyrri hálfleiknum og Óskar Örn Hauksson bætti við tveimur mörkum á síðustu 20 mínútum leiksins.
KR-ingar eru þá komnir með 6 stig eftir 3 leiki, eins og Breiðablik, en Fram er efst í 1. riðli með 9 stig eftir 3 leiki. Þróttur er með 3 stig eftir þrjá leiki