Danski knattspyrnumaðurinn Christian Olsen gekk í dag til liðs við Eyjamenn og er með leikheimild með þeim frá og með morgundeginum.
Olsen er 28 ára gamall sóknarmaður og var í röðum B-deildarliðsins Skive á yfirstandandi tímabili en þar áður lék hann með Viborg og Midtjylland. Hann skoraði 13 mörk í 34 leikjum fyrir Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni árin 2006-2008.
Olsen hefur gengið undir viðurnefninu „Speedy“ þar sem hann er geysifljótur. Hann var á reynslu hjá ÍBV fyrr í vetur og skoraði m.a. í tveimur leikjum Eyjamanna á þeim tíma.