Stórsigur hjá Eyjamönnum

Magnús Gylfason þjálfari ÍBV.
Magnús Gylfason þjálfari ÍBV. mbl.is/Eggert Jóhannesson

ÍBV burstaði Tindastól, 5:0, en liðin áttust við í Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu í Akraneshöllinni í dag.

Kjartan Guðjónsson skoraði tvö marka ÍBV og þeir Gunnar Már Guðmundsson, Christian Steen Olsen og Víðir Þorvarðarson skoruðu sitt markið hver.

ÍBV hefur fimm stig í riðli 2 í A-deildinni og er í fjórða sætinu en Tindastóll er í næstneðsta sætinu með eitt stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert