Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var svekktur eftir tap liðsins gegn KR, 2:0, á KR-vellinum í kvöld.
Hann sagði KR-liðið einfaldlega hafa verið betra og sína menn ekki nægilega klóka að nýta þau svæði sem opnuðust gegn sterkri vörn KR.
FH átti að fá víti í leiknum en ekkert var dæmt. Sama var uppi á teningnum í fyrra þegar liðin mættust í Frostaskjóli.
„Eru andstæðingarnir mikið að fá víti hér á KR-vellinum?“ spyr Heimir en nánar er rætt við hann hér að ofan.