Skiptur hlutur á Fylkisvelli

Blikinn Sverrir Ingi Ingason í slag við tvo Fylkismenn.
Blikinn Sverrir Ingi Ingason í slag við tvo Fylkismenn. mbl.is/Golli

Fylk­ir og Breiðablik skildu jöfn, 1:1, í 9. um­ferð úr­vals­deild­ar karla í knatt­spyrnu, Pepsi-deild­inni, á Árbæj­ar­velli eft­ir marka­laus­an fyrri hálfleik.

Eft­ir dauf­an fyrri hálfleik kom Pet­ar Rn­kovic Breiðabliki yfir með marki á 55. mín­útu. Fylk­is­menn náðu að jafna met­in, 1:1, þegar Jó­hann Þór­halls­son skoraði á 82. mín­útu fimm mín­út­um eft­ir að hafa komið inn á sem varamaður. Jó­hann nýtti sér mis­tök sem Sig­mar Ingi Sig­urðsson, markvörður Breiðabliks, gerði þegar hann hélt ekki bolt­an­um eft­ir lang­skot að mark­inu. Bæði lið reyndu að tryggja sér sig­ur­inn á lokakafl­an­um en allt kom fyr­ir ekki.

Fylgst varð með leikn­um í beinni texta­lýs­ingu á mbl.is.

 Smellið hér.

Lið Fylk­is: Bjarni Þórður Hall­dórs­son (m)(f) - Ásgeir Börk­ur Ásgeirs­son, Finn­ur Ólafs­son, Davíð Þór Ásbjörns­son, Árni Freyr Guðna­son, Björgólf­ur Takefusa, Kjart­an Ágúst Breiðdal, Magnús Þórir Matth­ías­son, Odd­ur Ingi Guðmunds­son, Dav­id El­bert, Andri Þór Jóns­son.
Vara­menn: Ingi­mund­ur Ní­els Óskars­son, Jó­hann Þór­halls­son, Tóm­as Þor­steins­son, Ásgeir Örn Arnþórs­son, Elís Rafn Björns­son, Emil Ásmunds­son, Kristján Finn­boga­son (m).

Lið Breiðabliks: Sig­mar Ingi Sig­urðar­son (m) - Gísli Páll Helga­son, Finn­ur Orri Mar­geirs­son (f), Rene Ger­ard Jaap Troost, Rafn Andri Har­alds­son, Ol­geir Sig­ur­geirs­son, Sverr­ir Ingi Inga­son, Krist­inn Jóns­son,  Tóm­as Óli Garðars­son, Pet­ar Rn­kovic, Andri Rafn Yeom­an.
Vara­menn: Hlyn­ur Örn Hlöðvers­son (m), Sindri Snær Magnús­son, Elf­ar Árni Aðal­steins­son, Jök­ull I. Elísa­bet­ar­son, Arn­ar Már Björg­vins­son, Þórður Stein­ar Hreiðars­son, Árni Vil­hjálms­son.

Fylk­ir - Breiðablik, leik­skýrsl­an.

Fylk­ir 1:1 Breiðablik opna loka
skorar Jóhann Þórhallsson (80. mín.)
Mörk
skorar Petar Rnkovic (55. mín.)
fær gult spjald Kjartan Ágúst Breiðdal (20. mín.)
fær gult spjald Ásgeir Börkur Ásgeirsson (55. mín.)
fær gult spjald Andri Þór Jónsson (70. mín.)
fær gult spjald Árni Freyr Guðnason (71. mín.)
Spjöld
fær gult spjald Rafn Andri Haraldsson (53. mín.)
fær gult spjald Sverrir Ingi Ingason (61. mín.)
fær gult spjald Olgeir Sigurgeirsson (82. mín.)
mín.
90 Leik lokið
90 Fylkir fær hornspyrnu
90
Hurð skellur nærri hælum við mark Blika eftir mistök Sigmars í markinu. Blikar bjarga í horn.
90 Breiðablik fær hornspyrnu
90 Sverrir Ingi Ingason (Breiðablik) á skot sem er varið
- sannkallað dauðafæri.
90
Tilkynnt er að þremur mínútum sé bætt við leiktímann.
90
Fylkismenn í vænlegri sókn en Jóhann fer illa að ráði sínu þegar hann tekur alltof langan tíma með boltann og varnarmenn Blika ná að verjast.
89 Breiðablik fær hornspyrnu
89 Kristinn Jónsson (Breiðablik) á skot sem er varið
85
Gróðrarskúr á Fylkisvelli.
85 Breiðablik fær hornspyrnu
84 Jökull I. Elísabetarson (Breiðablik) kemur inn á
84 Olgeir Sigurgeirsson (Breiðablik) fer af velli
84 Elís Rafn Björnsson (Fylkir) kemur inn á
84 Finnur Ólafsson (Fylkir) fer af velli
83 Breiðablik fær hornspyrnu
82 Olgeir Sigurgeirsson (Breiðablik) fær gult spjald
- fyrir harkalega tæklingu gegn Bjarna Þórði.
80 MARK! Jóhann Þórhallsson (Fylkir) skorar
Davíð Þór átti skot nærri því frá miðju vallarins, Sigmar markvörður Blika hélt ekki boltanum og Jóhann var fljótur að átta sig og tók boltann og skaut honum í markið úr miðjum vítateignum. Afar klaufalegt hjá Sigmari.
77 Jóhann Þórhallsson (Fylkir) kemur inn á
77 Árni Freyr Guðnason (Fylkir) fer af velli
71 Árni Freyr Guðnason (Fylkir) fær gult spjald
70 Andri Þór Jónsson (Fylkir) fær gult spjald
- fyrir leikaraskap. Hann reyndi að fiska vítaspyrnu að mati Kristins Jakobssonar dómara.
69 Ingimundur Níels Óskarsson (Fylkir) kemur inn á
69 Oddur Ingi Guðmundsson (Fylkir) fer af velli
66
Dofnað hefur yfir leiknum á nýjan leik.
64 Tómas Óli Garðarsson (Breiðablik) á skot framhjá
- hátt yfir.
61 Sverrir Ingi Ingason (Breiðablik) fær gult spjald
60
Aukið fjör hefur hlaupið í leikinn eftir markið og ekki veitti af.
57 Björgólfur Takefusa (Fylkir) á skot sem er varið
- af stuttu færi en Sigmar bjargaði vel með úthlaupi og lokaði markinu.
56 Árni Vilhjálmsson (Breiðablik) kemur inn á
56 Rafn Andri Haraldsson (Breiðablik) fer af velli
55 MARK! Petar Rnkovic (Breiðablik) skorar
Kristinn átti langa aukspyrnu frá miðjum vallarhelmingi Fylkis frá vinstri kanti, sendingin fór á koll eins Blika og þaðan áfram til Rnkovic sem náði að breyta stefnu knattarins sem fór í markið enda Bjarni Þórður kominn úr jafnvægi.
55 Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir) fær gult spjald
53 Rafn Andri Haraldsson (Breiðablik) fær gult spjald
50 Þórður Steinar Hreiðarsson (Breiðablik) kemur inn á
50 Gísli Páll Helgason (Breiðablik) fer af velli
49
Ein besta sókn Fylkis í leiknum. Magnús Þórir komst upp hægri kantinn eftir gott samspi. Hann átti góða sendingu á Björgólf sem var á auðum sjó en tók ekki vel við boltanum og sóknin rann út í sandinn.
47 Breiðablik fær hornspyrnu
46 Leikur hafinn
- Fylkismenn hefja síðari hálfleik með boltann en eru fljótir að koma honum frá sér.
45 Hálfleikur
- synd væri að segja að fyrri hálfleikur hafi verið skemmtilegur. Mikið um langar sendingar andstæðinga á milli. Samspil hefur verið lítið og marktækifæri ekki teljandi. Vonandi lifnar yfir leiknum í síðari hálfleik.
44 Björgólfur Takefusa (Fylkir) á skot framhjá
43 Kristinn Jónsson (Breiðablik) á skot sem er varið
- vel varið hjá Bjarna Þórði.
39 Breiðablik fær hornspyrnu
34 Tómas Óli Garðarsson (Breiðablik) á skot sem er varið
- góð tilraun. Skot með vinstri fætur úr vítateignum hægra megin. Bjarni Þórður var vandanum vaxinn í marki Fylkis.
32 Fylkir fær hornspyrnu
30 Fylkir fær hornspyrnu
26 Fylkir fær hornspyrnu
25 Finnur Orri Margeirsson (Breiðablik) á skalla sem fer framhjá
25 Breiðablik fær hornspyrnu
25 Breiðablik fær hornspyrnu
20 Kjartan Ágúst Breiðdal (Fylkir) fær gult spjald
19
Magnús Þórir með góða fyrirgjöf frá vinstri sem Blikar ná að hreinsa frá á elleftu stundu.
12 Kjartan Ágúst Breiðdal (Fylkir) á skot framhjá
9 Fylkir fær hornspyrnu
9 Sigmar Ingi Sigurðarson (Breiðablik) varði
- frá samherja Kristni Jónssyni sem nærri því hafði skorað sjálfsmark annan leikinn í röð.
3 Fylkir fær hornspyrnu
2 Kristinn Jónsson (Breiðablik) á skot sem er varið
- með úthlaupi.
1 Leikur hafinn
0
Áhorfendur drífur nú að hér á Fylkisvöll. Verður er all gott, þurrt en sólarlaust, andvari og hiti um 10 gráður.
0
Tvær breytingar eru á byrjunarliði Breiðabliks í kvöld frá viðureigninni við KR í síðustu viku. Sigmar Ingi Sigurðsson, markvörður, og Rafn Andri Haraldsson, koma inn í kvöld í stað Ingvars Kale, sem er í leikbanni, og Hauks Baldvinssonar.
0
Þrjár breytingar eru á byrjunarliði Fylkis frá síðasta leik í Pepsi-deildinni. Finnur Ólafsson, Árni Freyr Guðnason og Magnús Þórir Matthíasson koma inn í liðið fyrir Ingimund Níels Óskarsson, Tómas Þorsteinsson og Kristján Valdimarsson, sem er titlaður liðsstjóri í kvöld.
0
Ingvar Þór Kale markvörður Breiðabliks er í banni en hann var rekinn af velli í bikarleiknum við KR á dögunum. Sigmar Ingi Sigurðarson kemur því í markið á ný en hann varði mark Blika í fyrstu fimm leikjum þeirra í deildinni í vor.
0
Breiðablik hefur unnið Fylki í fimm leikjum í röð í efstu deild, frá 2009. Í fyrra unnu Blikar 3:1 í Kópavogi þar sem Kristinn Steindórsson skoraði þrennu og síðan 2:1 í Árbænum þar sem Kári Ársælsson, núverandi miðvörður ÍA, skoraði sigurmarkið. Alls hefur Breiðablik unnið 9 leiki en Fylkir 7 af 18 viðureignum félaganna í efstu deild frá 1996.
0
Breiðablik er í 6. sæti deildarinnar með 13 stig eftir 8 leiki en Fylkir er í 8. sætinu með 12 stig eftir 8 leiki. Sigurliðið gæti verið komið í þriðja sæti deildarinnar eftir leiki kvöldsins.
Sjá meira
Sjá allt

Fylkir: (M), .
Varamenn: (M), .

Breiðablik: (M), .
Varamenn: (M), .

Skot: Breiðablik 9 (7) - Fylkir 4 (2)
Horn: Breiðablik 8 - Fylkir 6.

Lýsandi:
Völlur: Fylkisvöllur

Leikur hefst
2. júlí 2012 19:15

Aðstæður:
Andvari, alskýjað en þurrt, hiti 14 stig við upphaf leiks samkvæmt vallarmælinum.

Dómari: Kristinn Jakobsson
Aðstoðardómarar: Frosti Viðar Gunnarsson og Gylfi Már Sigurðsson

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert