Jónas Tór Næs, landsliðsmaður Færeyja í knattspyrnu, er á leiðinni til Valsmanna á nýjan leik og hefur skrifað undir samning við félagið, en frá því er greint á vef Vals.
Jónas, sem er 25 ára gamall, var fastamaður í Valsliðinu sem hægri bakvörður á síðasta tímabili og spilaði 21 af 22 leikjum liðsins í úrvalsdeildinni, en gekk síðan til liðs við danska C-deildarliðið Fremad Amager.
Hann verður að óbreyttu löglegur með Valsmönnum frá og með 15. júlí.