Samkvæmt áreiðanlegum heimildum mbl.is eru Framarar í viðræðum við sænskt úrvalsdeildarlið um kaup á skoska framherjanum Steven Lennon.
Einnig hefur lið frá Noregi áhuga á að fá Lennon til liðs við sig en samkvæmt heimildum mbl.is standa nú yfir samningaviðræður milli Fram og sænska liðsins sem er um miðja deild þar í landi. Svo gæti farið að gengið yrði frá málum á morgun.
Mbl.is hafði samband við Guðmund Torfason, varaformann knattspyrnudeildar Fram og formann meistaraflokksráðs, en hann vildi ekkert tjá sig um málið. „No comment,“ sagði Guðmundur.
Lennon hefur komið mikið við sögu í þessum félagaskiptaglugga sem nú er opinn en Framarar neituðu tilboði KR-inga í Skotann án þess að láta hann vita, að sögn Lennon.
Í útvarpsviðtali á X-inu sagðist Lennon vilja komast frá Fram til KR og hann væri ósáttur við forráðamenn Fram að hann hafi ekki fengið að vita af viðræðum félaganna um vistaskipti hans.