Baldur Sigurðsson var líkt og kóngur í ríki sínu í kvöld í Keflavíkinni og án nokkurs vafa var kappinn maður leiksins. Baldur setti tvö mörk á Keflvíkinga og það seinna afar glæsilegt og því lýsti hann fyrir okkur í viðtali. Baldur sagði að eftir að KR skoraði þá hafi þeir eignast leikinn og að þegar Keflvíkingar fóru að sækja meira þá refsuðu þeir með öðru marki.