KR-ingar hafa ákveðið að semja við spænska knattspyrnumanninn Gonzalo Balbi um að leika með liðinu út yfirstandandi keppnistímabil. Balbi er 21 árs gamall og er mágur Luis Suárez, leikmanns Liverpool.
Hann kom fyrst til reynslu hjá KR í byrjun júní og hefur greinilega náð að heilla menn því Rúnar Kristinsson þjálfari staðfesti það við vefsíðuna fótbolta.net í dag að líklega yrði samið við Balbi í dag.
„Hann skrifar væntanlega undir samning í dag út þetta keppnistímabil. Hann er góður í fótbolta þessi strákur,“ sagði Rúnar.
Balbi var valinn í hina svokölluðu Nike Football Academy leiktíðina 2011-2012 ásamt 15 öðrum, úr hópi 100 leikmanna sem æfðu í Barcelona. Upphaflega sóttust 150 milljón leikmenn eftir að komast í akademíuna.