Fyrsti bikarsigur Fram í 24 ár

Fram­ar­ar eru bikar­meist­ar­ar karla í knatt­spyrnu árið 2013. Þeir lögðu Stjörn­una í víta­keppni í úr­slit­um Borg­un­ar­bik­ars­ins á Laug­ar­dals­velli í dag eft­ir að jafnt var eft­ir venju­lega leiktíma og fram­leng­ingu, 3:3. Staðan í hálfleik var 2:0 fyr­ir Stjörn­una. Í víta­keppn­inni skoraði Fram úr þrem­ur spyrn­um af fjór­um en Stjarn­an aðeins úr einni af fjór­um.

Þetta er í fyrsta sinn í 24 ár sem Fram­ar­ar verða bikar­meist­ar­ar en þeir hafa nú unnið keppn­ina 8 sinn­um. Þá er þetta fyrsti stóri tit­ill fé­lags­ins í 23 ár, eða síðan Fram varð Íslands­meist­ari árið 1990. Stjörnu­mönn­um mistókst að landa sín­um fyrsta stóra titli og þeir máttu sætta sig við að tapa úr­slita­leik bik­ar­keppn­inn­ar annað árið í röð.

Stjarn­an fékk óska­byrj­un þegar dæmd var víta­spyrna á 5. mín­útu þegar Kennie Chopart var togaður niður í víta­teig Fram. Hall­dór Orri Björns­son skoraði af miklu ör­yggi úr víta­spyrn­unni, 1:0.

Marg­ir töldu að Fram­ar­ar hefðu jafnað á 16. mín­útu. Hólm­bert Aron Friðjóns­son skaut í þverslá úr auka­spyrnu og Hauk­ur Bald­vins­son náði frá­kast­inu og skallaði að marki Stjörn­unn­ar. Bolt­inn virt­ist fara yfir marklín­una en dóm­ar­inn var á öðru máli.

Veig­ar Páll Gunn­ars­son skoraði síðan annað mark Garðbæ­inga á 39. mín­útu, sér­lega glæsi­legt mark þar sem Veig­ar Pall vippaði salla­ró­leg­ur yfir Ögmund í marki Fram eft­ir flotta send­ingu frá Garðari Jó­hanns­syni og staðan var 2:0 í hálfleik.

Hólm­bert Aron Friðjóns­son minnkaði mun­inn á 52. mín­útu með fínu marki eft­ir send­ingu Almarrs Ormars­son­ar, sem síðan jafnaði met­in, 2:2, með skalla á 64. mín­útu.

Hall­dór Orri gerði sitt annað mark á 71. mín­útu og kom Stjörn­unni í 3:2 þegar hann fékk send­ingu inní víta­teig­inn vinstra meg­in frá Atla Jó­hanns­syni.

Almarr jafnaði hins­veg­ar met­in fyr­ir Fram með sínu öðru marki eft­ir auka­spyrnu og skalla Hólm­berts á 88. mín­útu, 3:3, þannig að það varð að fram­lengja leik­inn.

Ekk­ert var skorað þar og í víta­keppn­inni varði Ögmund­ur Krist­ins­son tví­veg­is frá Stjörnu­mönn­um og Fram­ar­ar fögnuðu sigri.

Síðar í kvöld birt­ast viðtöl við leik­menn og þjálf­ara liðanna á mbl.is.

Leik­skýrsl­an.

Lið Fram: Ögmund­ur Krist­ins­son - Alan Low­ing, Jor­d­an Halsm­an, Krist­inn Ingi Hall­dórs­son, Hauk­ur Bald­vins­son, Almarr Ormars­son, Vikt­or Bjarki Arn­ars­son, Sam Hew­son, Hólm­bert Aron Friðjóns­son, Orri Gunn­ars­son, Ólaf­ur Örn Bjarna­son.
Vara­menn: Den­is Car­daklija (m), Hall­dór Her­mann Jóns­son, Daði Guðmunds­son, Jón Gunn­ar Ey­steins­son, Hall­dór Arn­ars­son, Aron Bjarna­son, Aron Þórður Al­berts­son.

Lið Stjörn­unn­ar: Ingvar Jóns­son - Jó­hann Lax­dal, Michael Præst, Atli Jó­hanns­son, Daní­el Lax­dal, Hall­dór Orri Björns­son, Veig­ar Páll Gunn­ars­son, Robert Johann Sand­nes, Kennie Chopart, Garðar Jó­hanns­son, Mart­in Rauschen­berg.
Vara­menn: Arn­ar Darri Pét­urs­son, Tryggvi Sveinn Bjarna­son, Hörður Árna­son, Ólaf­ur Karl Fin­sen, Gunn­ar Örn Jóns­son, Bald­vin Sturlu­son, Snorri Páll Blön­dal.

Fram 6:4 Stjarn­an opna loka
skorar Hólmbert Aron Friðjónsson (52. mín.)
skorar Almarr Ormarsson (64. mín.)
skorar Almarr Ormarsson (86. mín.)
skorar úr víti Hólmbert Aron Friðjónsson (120. mín.)
skorar úr víti Samuel Hewson (120. mín.)
skorar úr víti Jordan Halsman (120. mín.)
Mörk
skorar úr víti Halldór Orri Björnsson (5. mín.)
skorar Veigar Páll Gunnarsson (39. mín.)
skorar Halldór Orri Björnsson (71. mín.)
skorar úr víti Ólafur Karl Finsen (120. mín.)
fær gult spjald Almarr Ormarsson (7. mín.)
fær gult spjald Alan Lowing (31. mín.)
fær gult spjald Kristinn Ingi Halldórsson (47. mín.)
Spjöld
fær gult spjald Martin Rauschenberg (33. mín.)
fær gult spjald Veigar Páll Gunnarsson (47. mín.)
fær gult spjald Michael Præst (90. mín.)
fær gult spjald Atli Jóhannsson (93. mín.)
mín.
120
Ögmundur varði frá Gunnari Erni og eru Bikarmeistarar.
120
Ingvar ver spyrnu Lowing, 3:1 fyrir Fram
120
Ögmundur varði vítaspyrnu Halldórs Orra, staðan 3:1 í vítunum fyrir fRam
120 MARK! Jordan Halsman (Fram) skorar úr víti
3:1
120
Garðar Jóhannsson skorar ekki, setur knöttinn í sllánna
120 MARK! Samuel Hewson (Fram) skorar úr víti
2:1Ingvar í boltanum
120 MARK! Ólafur Karl Finsen (Stjarnan) skorar úr víti
1:1
120 MARK! Hólmbert Aron Friðjónsson (Fram) skorar úr víti
1:0
120
Vítaskytturnar munu skjóta á markkið sem er nær Laugardalshöllinni og það eru Framarar sem byrja. Hólmbert tekur fyrstu spyrnuna
120 Leik lokið
Vítaspyrnukeppni framundan.
115 Tryggvi Sveinn Bjarnason (Stjarnan) kemur inn á
115 Atli Jóhannsson (Stjarnan) fer af velli
115 Garðar Jóhannsson (Stjarnan) á skalla sem fer framhjá
115 Stjarnan fær hornspyrnu
112 Fram fær hornspyrnu
110 Fram fær hornspyrnu
110 Almarr Ormarsson (Fram) á skot sem er varið
110 Samuel Hewson (Fram) á skot sem er varið
108 Gunnar Örn Jónsson (Stjarnan) á skot framhjá
Örlítið framhjá
107 Garðar Jóhannsson (Stjarnan) á skalla sem er varinn
106 Leikur hafinn
105 Hálfleikur
Hálfleikur í framlengingunni.
104 Hólmbert Aron Friðjónsson (Fram) á skalla sem fer framhjá
103 Stjarnan fær hornspyrnu
100 Aron Bjarnason (Fram) á skot sem er varið
93 Atli Jóhannsson (Stjarnan) fær gult spjald
Brot
92 Fram fær hornspyrnu
92 Aron Bjarnason (Fram) á skot sem er varið
Frábærlega varið
91 Leikur hafinn
Framlenging hafin og Fram byrjar og leikur í átt að Höllinni
90 Leik lokið
Það verður framlengt hér í Dalnum.
90 Gunnar Örn Jónsson (Stjarnan) á skot framhjá
Fínt skot rétt framhjá
90 Michael Præst (Stjarnan) fær gult spjald
Líklega fyrir að láta Hólbert heyra það óþvegið eftir að hafa brotið á honum.
90 Stjarnan fær hornspyrnu
Aftur horn
90 Stjarnan fær hornspyrnu
90 Ólafur Karl Finsen (Stjarnan) á skot sem er varið
Flott færi en vel varið
90
Kristinn Jakobsson ætlar að láta leikinn standa í fimm mínútur til viðbótar
86 MARK! Almarr Ormarsson (Fram) skorar
Hólmar skallar inn í vítateiginn þar sem Ormarr náði að skora af miklu harðfylgi
84 Garðar Jóhannsson (Stjarnan) á skot framhjá
Hátt yfir
84
Præst liggur alblóðugur á vellinum en er vafinn um höfuðið og heldur áfram leik
83 Daði Guðmundsson (Fram) kemur inn á
83 Ólafur Örn Bjarnason (Fram) fer af velli
83 Gunnar Örn Jónsson (Stjarnan) kemur inn á
83 Veigar Páll Gunnarsson (Stjarnan) fer af velli
83 Garðar Jóhannsson (Stjarnan) á skalla sem fer framhjá
83 Stjarnan fær hornspyrnu
74 Aron Bjarnason (Fram) á skot sem er varið
71 MARK! Halldór Orri Björnsson (Stjarnan) skorar
Glæsæileg sókn sem endaði með marki. Garðar gaf á Veigar Pál. Hann lagði knöttinná Atla sem renndi inn á Halldór Orra sem var vinstra megin í teignum og skoraði með fínu skoti.
69 Halldór Hermann Jónsson (Fram) kemur inn á
69 Viktor Bjarki Arnarsson (Fram) fer af velli
67 Garðar Jóhannsson (Stjarnan) á skot framhjá
Fín sókn sem endið með skoti af stuttu færi í hliðarnetið
64 MARK! Almarr Ormarsson (Fram) skorar
Almar skallaði í netið frá markteigshorninu hægra megin eftir sendingu frá Jordan Halsman frá vinsti kantinum.
61 Almarr Ormarsson (Fram) á skot framhjá
Viðstöðulaust skot rétt utan teigs en hátt yfir
60
Nóg að gera hjá bakverðinum Jóhanni Laxdal þessar mínúturnar því hann er búinn að taka ein fimm innköst á móts við vítateig Framarar.
55 Aron Bjarnason (Fram) kemur inn á
55 Haukur Baldvinsson (Fram) fer af velli
53 Atli Jóhannsson (Stjarnan) á skot sem er varið
52 MARK! Hólmbert Aron Friðjónsson (Fram) skorar
Vel gert hjá honum, fékk knöttinn á markteigshorninu hægra megin og snéri baki í markið. Hann snéri sér og þrumaði boltanum upp í þaknetið.
51 Halldór Orri Björnsson (Stjarnan) á skot sem er varið
Beit á Ögmund úr aukaspyrnu
47 Kristinn Ingi Halldórsson (Fram) fær gult spjald
Brot
47 Veigar Páll Gunnarsson (Stjarnan) fær gult spjald
Brot
46 Leikur hafinn
45 Hálfleikur
Kominn hálfleikur og Stjörnumenn virðast vera með þetta í hendi sér en þó rétt að hafa í huga að leikuirnn er aðeins hálfnaður.
42 Veigar Páll Gunnarsson (Stjarnan) á skot sem er varið
Enn eins glæsisóknin hjá Stjörnunni sem endaði með stuttu spili þriggja manna á litlu svæði í vítateignum. En Ögmundur náði til knattarins áður en þriðja markið kom.
41 Ólafur Karl Finsen (Stjarnan) kemur inn á
41 Kennie Chopart (Stjarnan) fer af velli
39 MARK! Veigar Páll Gunnarsson (Stjarnan) skorar
Flott mark hjá Veigari Páli. Boltinn kom inn á vítateiginn þar sem Garðar skallaði niður til Veigars sem vippaði laglega yfir Ögmund.
36
Chopart virðist meiddur og verð er að hlúa að honum.
33 Martin Rauschenberg (Stjarnan) fær gult spjald
Fyrir brot
32 Veigar Páll Gunnarsson (Stjarnan) á skot sem er varið
Fínt skot úr aukaspyrnunni en Ögmundur ver
31 Alan Lowing (Fram) fær gult spjald
brot á Veigari rétt utan vítateigs.
22 Veigar Páll Gunnarsson (Stjarnan) á skot framhjá
Flott sókn hjá Stjörnunni en skot Veigars Páls rétt framhjá
20 Fram fær hornspyrnu
Frá vinstri
18 Almarr Ormarsson (Fram) á skot sem er varið
Laust skot
16 Haukur Baldvinsson (Fram) á skalla sem er varinn
Náði frákastinu og skallaði og virtist boltinn fara yfir línuna en aðstoðardómarinn sem var í línu sagði nei.
16 Hólmbert Aron Friðjónsson (Fram) á skot í þverslá
Negla úr aukaspyrnunni í þverslána.
15
Hólmbert fær aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Flott færi.
8
Þetta er trúlega eki sú byrjun sem Framarar óskuðu sér, vítaspyrna, mark og gult spjald á Ormarr.
7 Almarr Ormarsson (Fram) fær gult spjald
Óþarfa spjald, braut af sér og mótmætli síðan dóminum og sparkaði knettinum í burtu
5 MARK! Halldór Orri Björnsson (Stjarnan) skorar úr víti
Föst spyrna efst í vinstra hornið
5 Stjarnan fær víti
Chopard togaðr niður af Viktori Bjarka.
1 Stjarnan (Stjarnan) á skot sem er varið
Auðvelt fyrir Ögmund
1 Almarr Ormarsson (Fram) á skot sem er varið
Auðvelt fyrir Ingvar
1 Leikur hafinn
Framarar leika í átt að Laugardalshöllinnni en það eru Garðbæingar sem byrja með knöttinn.
0
Aðstæður hér á Laugardalsvelli eru eins og best verður á kostið og völlurinn glæsilegur að sjá. Áhorfendur hópast á völlinn en í stúkunni á móti stóru stúkunni sitja tveir áhorfendur og njóta sólarinnar.
0
Stjarnan komst í úrslit með því að vinna Þór á Akureyri 3:4 í vítakeppni, FH 3:1 í Garðabæ, Fylki 2:3 í Árbænum og KR 2:1 í Garðabæ.
0
Fram komst í úrslitaleikinn með því að leggja Vals 1:2 að Hlíðarenda, Víkinga í Ólafsvík 4:5 í vítakeppni,. Gróttu 1:2 á Seltjarnarnesi og Breiðablik 2:1 á Laugardalsvelli
Sjá meira
Sjá allt

Fram: (M), .
Varamenn: (M), .

Stjarnan: (M), .
Varamenn: (M), .

Skot: Fram 17 (15) - Stjarnan 18 (11)
Horn: Stjarnan 5 - Fram 4.

Lýsandi:
Völlur: Laugardalsvöllur

Leikur hefst
17. ágú. 2013 16:00

Aðstæður:
Eins og best verður á kosið. Sól, hlítt og aðeins smá andvari.

Dómari: Kristinn Jakobsson
Aðstoðardómarar: Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert