Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmaður í fótbolta, er orðinn heill af meiðslum sínum og æfði með Zulte-Waregem í dag. Liðið flýgur svo til Slóveníu á morgun en það mætir Maribor í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöldið.
Ólafur Ingi meiddist á landsliðsæfingu fyrir leik Íslands gegn Kýpur og var ekki með liðinu í leikjunum tveimur sem komu Ísland í umspilið gegn Króatíu. Hann hefur misst af þeim leikjum sem Zulte-Waregem hefur leikið síðan.
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari í fótbolta, tilkynnir hópinn sem mætir Króatíu á fimmtudaginn.