Kolbeinn borinn meiddur af velli

Kolbeinn Sigþórsson borinn meiddur af leikvelli.
Kolbeinn Sigþórsson borinn meiddur af leikvelli. Eggert Jóhannesson

Kolbeinn Sigþórsson, framherji íslenska landsliðsins í knattspyrnu, var borinn af velli á lokamínútum landsleiksins gegn Króatíu sem nú stendur yfir á Laugardalsvellinum.

Miðað við sjónvarpsmyndir lítur þetta ekki vel út, Kolbeinn var sárþjáður og virðist hafa meiðst illa á ökkla eða hásin.

Kolbeinn Sigþórsson liggur þjáður á leikvellinum.
Kolbeinn Sigþórsson liggur þjáður á leikvellinum. Eggert Jóhannesson
Kolbeinn Sigþórsson borinn af leikvelli.
Kolbeinn Sigþórsson borinn af leikvelli. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert