Alþjóða knattspyrnusambandið hefur kært króatíska landsliðsmanninn Josip Simunic fyrir að hafa látið stuðningsmenn kyrja með sér þekkta kveðju fasistahreyfingar eftir sigurinn gegn Íslendingum í umspili um sæti á HM í Zagreb á þriðjudaginn.
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, staðfesti í dag að Simunic, sem er 35 ára gamall og fyrirliði Dinamo Zagreb, hafi verið kærður fyrir athæfið en í gær var hann sektaður af saksóknara í Króatíu um upphæð sem jafngildir 525 þúsund krónum.