Tímamótaráðning hjá KSÍ

Lars Lagerbäck, Geir Þorsteinsson og Heimir Hallgrímsson á fréttamannafundi í …
Lars Lagerbäck, Geir Þorsteinsson og Heimir Hallgrímsson á fréttamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í gær. mbl.is/Golli

Óhætt er að tala um tímamótaráðningu hjá Knattspyrnusambandi Íslands, sem tilkynnti í gær að Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson yrðu landsliðsþjálfarar karla næstu tvö árin og síðan myndi Lagerbäck stíga til hliðar og Heimir yrði með liðið í tvö ár þar á eftir.

Þar með er búið að afgreiða á einu bretti þjálfaramálin fyrir næstu tvö stórmót, undankeppni og mögulega úrslitakeppni í þeim báðum. Og niðurstaðan er sú sem líkast til allir sem á annað borð hafa áhuga á íslenska karlalandsliðinu og framgangi þess eru mjög sáttir við.

Samvinna þeirra Lagerbäcks og Heimis hefur verið til fyrirmyndar frá fyrsta degi. Þeir hafa náð einstaklega vel saman, bæta greinilega hvor annan upp og Heimir var sá tengiliður Svíans við íslenska fótboltann, og með þá miklu þekkingu á honum, sem hann þurfti á að halda. Þegar það small saman við geysimikla reynslu Lagerbäcks af alþjóðlegum fótbolta og þekkingu á því hvað þarf til að ná árangri þar varð til öflugt þjálfarateymi sem nú mun halda áfram. Undir aðeins breyttum formerkjum – þeir eru báðir þjálfarar liðsins næstu tvö árin, og þar með fær Heimir enn betri skólun í landsliðsfræðunum áður en hann tekur alfarið við liðinu á árinu 2016. Vonandi ekki fyrr en að loknu EM í Frakklandi þá um sumarið!

Sjá nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert