Keppni í deildabikar karla í knattspyrnu, Lengjubikarnum, hélt áfram í dag þegar Skagamenn tóku á móti BÍ/Bolungarvík í Akraneshöllinni.
Andri Adolphsson kom heimamönnum yfir á 43. mínútu og var staðan 1:0 í hálfleik. Garðar Gunnlaugsson bætti öðru marki við úr vítaspyrnu á 71. mínútu áður en Sindri Kristinsson gulltryggði 3:0-sigur þeirra sex mínútum síðar.
Þetta var fyrsti leikur dagsins í mótinu en keppni heldur áfram síðar í dag.
Markaskorarar eru fengnir frá urslit.net