Ari Freyr Skúlason, leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins OB, er í liði vikunnar hjá danska blaðinu Tipsbladet fyrir frammistöðu sína í leiknum gegn Midtjylland um síðustu helgi.
Ara Frey er stillt upp í lið vikunnar sem miðjumanni en hann hefur leikið í þeirri stöðu hjá OB og í leiknum á móti Midjylland tryggði hann sínum mönnum sigurinn með laglegu marki sem var hans fyrsta á leiktíðinni. Þetta er í fimmta sinn á tímabilinu sem Ari Freyr er í liði vikunnar hjá Tipsbladet en hann hefur átt góðu gengi að fagna með danska liðinu.