Bjarni Þór Viðarsson skoraði sigurmark danska liðsins Silkeborg þegar liðið bar sigurorð af norska úrvalsdeildarliðinu Tromsö, 2:1, í æfingaleik í Tyrklandi í dag.
Bjarni Þór, sem hefur lítið fengið að spreyta sig með Silkeborg frá því hann kom til félagsins, var í byrjunarliðinu að þessu sinni og lék fyrstu 77. mínútur leiksins. Hann skoraði sigurmark leiksins á 28. mínútu.
Silkeborg leikur í dönsku B-deildinni og Tromsö féll úr norsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.