Andri Rafn æfir hjá Randers

Andri Rafn Yeoman t.h. í leik með Breiðabliki. Hann er …
Andri Rafn Yeoman t.h. í leik með Breiðabliki. Hann er nú til reynslu hjá Randers í Danmörku. mbl.is/Kristinn

Andri Rafn Yeoman knattspyrnumaður Breiðabliks kom í dag til reynslu til danska úrvalsdeildarliðsins Randers. Reiknað er með að hann verði þar í um vikutíma.

Greint er frá þessu á danska vefnum, bold.dk.

Theodór Elmar Bjarnason er þegar á samningi hjá Randers og hefur staðið sig vel eftir því sem fram kemur í frétt á fyrrgreindum vef. 

Andri Rafn hefur verið fastamaður í liði Breiðabliks og einnig í U21 árs landsliði Íslands sem stendur vel að vígi í undankeppni Evrópumótsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert