Telma tryggði Blikum sigur

Fjolla Shala og Jóna Kristín Hauksdóttir, leikmenn Breiðabliks, með meistarabikarinn …
Fjolla Shala og Jóna Kristín Hauksdóttir, leikmenn Breiðabliks, með meistarabikarinn eftir sigurinn á Stjörnunni í meistarakeppninni í kvöld. Árni Sæberg

Breiðablik varð í kvöld meistari meistaranna í knattspyrnu kvenna þegar liðið vann Íslandsmeistara Stjörnunnar, 1:0, á Samsungvellinum í Garðabæ. Telma Hjaltalín Þrastardóttir skoraði eina mark leiksins strax á sjöttu mínútu leiksins. 

Stjarnan sótti mun meira í leiknum en Breiðabliks-liðið varðist fimlega öllum sóknartilburðum Íslandsmeistaranna. 

Þetta var annað árið í röð sem Stjarnan tapar meistaraleiknum en í sjötta sinn sem Blikar hampar þessum titili en í fyrsta skipti í átta ár. 

Kristrún Kristjánsdóttir, leikmaður Stjörnunnar t.v., í baráttu við Aldísi Köru …
Kristrún Kristjánsdóttir, leikmaður Stjörnunnar t.v., í baráttu við Aldísi Köru Lúðvíksdóttur, Blika í meistaraleiknum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert