Breiðablik varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu með því að sigra HK, 2:1, í nágrannaslag í Kórnum í Kópavogi.
Árni Vilhjálmsson kom Breiðabliki yfir um miðjan síðari hálfleik en Hörður Magnússon jafnaði metin fyrir HK tíu mínútum síðar. Skoski bakvörðurinn Jordan Halsman skoraði sigurmarkið á 80. mínútu.
Fylgst var með Kópavogsslagnum á ÍSLENSKI BOLTINN Í BEINNI.