Austurríki og Ísland skildu jöfn, 1:1, í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór á Tivoli Neu leikvanginum í Innsbruck í kvöld.
Marcel Sabitzer kom Austurríkismönnum yfir á 28. mínútu en Kolbeinn Sigþórsson jafnaði metin með glæsilegu skallamarki á fyrstu mínútu síðari hálfleiks eftir aukaspyrnu frá Ara Frey Skúlasyni.
Kolbeinn er þar með kominn í 3.-5. sætið yfir markahæstu landsliðsmenn Íslands frá upphafi með 14 mörk í aðeins 22 landsleikjum.
Þetta var næstsíðasti leikur liðsins áður en undankeppni Evrópumótsins 2016 hefst í haust en Ísland mætir Eistlandi á Laugardalsvellinum næsta miðvikudag.
Sjá nánar ÍSLENSKI BOLTINN Í BEINNI.