Viðar Örn Kjartansson, framherji Valerenga, er í byrjunarliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu í vináttuleiknum gegn Austurríkismönnum ytra í kvöld.
Viðar Örn hefur raðað inn mörkunum fyrir norska liðið í upphafi tímabils og var í kjölfarið valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn og er sem fyrr segir settur beint í byrjunarliðið.
Byrjunarlið Íslands: Hannes Þór Halldórsson - Birkir Már Sævarsson, Sölvi Geir Ottesen, Kári Árnason, Ari Freyr Skúlason - Rúrik Gíslason, Aron Einar Gunnarsson, Emil Hallfreðsson, Birkir Bjarnason - Viðar Örn Kjartansson, Kolbeinn Sigþórsson.