Megum ekki misstíga okkur

Gylfi Þór Sigurðsson
Gylfi Þór Sigurðsson Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Það kemur vafalaust til með að mæða mikið á Gylfa Þór Sigurðssyni þegar Íslendingar mæta Lettum á Skonto Stadium-vellinum í Riga í Lettlandi annað kvöld en þjóðirnar eigast þá við í undankeppni EM. Gylfi hefur farið mikinn með liðið Swansea City í byrjun leiktíðar í ensku úrvalsdeildinni þar sem hefur lagt upp hvert markið á fætur öðru og þá skoraði hann eins og frægt er sigurmarkið í fræknum sigri Swansea gegn Manchester United á Old Trafford.

Verður erfitt að brjóta þá á bak aftur

„Við höfum verið duglegir sjálfir leikmennirnir að minna okkur á hvernig síðasta keppni byrjaði,“ sagði Gylfi við Morgunblaðið en eftir góðan sigur á Norðmönnum í fyrsta leik í undankeppni HM tapaði íslenska liðið fyrir Kýpurbúum á útivelli. „Þessi leikur á móti Lettum er kannski svipaður þeim og við spiluðum á móti Kýpur. Lettarnir eru með lið sem situr til baka og það verður erfitt að brjóta þá á bak aftur. Þeir koma til með að verjast á mörgum mönnum og það kemur til með að mæða svolítið mikið á okkur sóknarmönnunum að reyna að komast í gegn og skora,“ sagði Gylfi, sem átti frábæran leik eins og reyndar flestir í íslenska liðinu þegar það lagði Tyrki, 3:0, á Laugardalsvellinum í síðasta mánuði. Gylfi skoraði annað markið í þeim leik og hefur þar með skorað 6 mörk í 25 landsleikjum.

Mikilvægt að kroppa í stig á útivelli

„Þetta er leikur sem við megum ekki misstíga okkur í ef við ætlum okkur einhverja hluti í þessari undankeppni. Það sem kemur til með að ráða miklu hvort við komust áfram eða ekki eru útileikirnir. Við verðum að vera duglegir að kroppa í stig þar og það er því mjög mikilvægt að ná þremur stigum út úr þessum leik því það eru nokkur mjög sterk lið í riðlinum sem munu ekki gera mikið af mistökum. Sigurinn á móti Tyrkjunum gaf liðinu mjög gott sjálfstraust. Staðan á leikmannahópnum í dag er góð. Það eru flestir heilir heilsu og við höfum flestir verið að spila nokkuð mikið með okkar félagsliðum. Það er mjög jákvætt. Það gekk allt upp hjá okkur í leiknum á móti Tyrkjunum en ég held að þessi leikur verði allt öðruvísi. Það er erfitt að segja til um það hvort við munum stjórna leiknum. Við reiknum alla vega með því að Lettarnir dragi lið sitt vel til baka og verjist á mörgum mönnum. Þeir hafa gert það í síðustu leikjum og hafa fengið mjög fá mörk á sig,“ sagði Gylfi.

Hefur gengið vel hjá mér

Spurður hvort föstu leikatriðin geti ekki verið afar dýrmæt í leikjum eins og þessum segir Gylfi; „Það er kominn tími á að Kári eða einhverjir af stóru strákunum skalli boltann inn og ég mun gera mitt besta til að ,,teikna“ boltann á þá. Vonandi tekst mér að hitta áhausinn á miðvörðunum,“ sagði Gylfi en ansi stór leikur er svo framundan á mánudaginn þegar Íslendingar taka á móti Hollendingum. ,,Við erum ekkert að hugsa um leikinn við Hollendinga. Það er mikilvægari leikur fyrir okkur að vinna Lettana. Ef við gerum það etum við farið í leikinn við Hollendingana án allrar pressu og notið þess að spila. Nú er bara aðalatriðið að ná þremur stigum á móti Lettunum og það ætlum við okkur svo sannarlega að gera,“ sagði Gylfi sem hlýtur að vera með bullandi sjálfstraust eftir frábært gengi með Swansea.

„Það er búið að ganga vel hjá mér og liðinu. Þrátt fyrir jafntefli í síðustu tveimur leikjum þá erum við í ágætisstöðu í deildinni.“

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. mbl.is/Ómar Óskarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert