Byrjunarlið Íslands sem mætir Hollandi á Laugardalsvelli kl. 18.45 í undankeppni EM í knattspyrnu er það sama og hóf leik gegn Lettum ytra á föstudagskvöld.
Þeir Gylfi Þór Sigurðsson og Theódór Elmar Bjarnason meiddust báðir lítillega í leiknum gegn Lettlandi en hafa náð að jafna sig nægilega vel til að hefja leik í kvöld. Þetta er sama byrjunarlið og vann Lettland 3:0, og Tyrkland 3:0 í fyrsta leik.
Mark: Hannes Þór Halldórsson.
Vörn: Theódór Elmar Bjarnason, Kári Árnason, Ragnar Sigurðsson, Ari Freyr Skúlason.
Miðja: Birkir Bjarnason, Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Emil Hallfreðsson.
Sókn: Jón Daði Böðvarsson, Kolbeinn Sigþórsson.