Courtois: Ísland kom mér á óvart

Thibaut Courtois ver skot frá Íslendingum í kvöld.
Thibaut Courtois ver skot frá Íslendingum í kvöld. AFP

Thibaut Courtois markvörður Belga kom svo sannarlega í veg fyrir að Íslendingar skoruðu ekki meira en eitt mark þegar Belgar lögðu Íslendinga, 3:1, í vináttuleik í Brussel í kvöld.

„Íslenska liðið kom mér virkilega á óvart. Ég þurfti að hafa mig allan við að verja í markinu. Ég bjóst alls ekki við íslenska liðinu svona sterku og sérstaklega eftir að við heyrðum af því að þeir myndu tefla fram B-liðinu sínu. Ég gerði að vísu það sem ég á að gera, það er að verja, en ég verð að segja að Íslendingarnir stóðu sig vel og komu mér þægilega á óvart,“ sagði Courtois við mbl.is en hann leikur með Chelsea og er klárlega í hópi bestu markvarða heims.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert