Átta breytingar á liði Íslands

Hörður Árnason leikur í kvöld sinn fyrsta A-landsleik.
Hörður Árnason leikur í kvöld sinn fyrsta A-landsleik. mbl.is/Ómar

Landsliðsþjálfararnir, Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, hafa tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Kanada i seinni vináttulandsleik þjóðanna á fjórum dögum en leikið verður í Orlando í kvöld og hefst leikurinn klukkan 21 að íslenskum tíma.

Átta breytingar eru á liðinu frá leiknum á föstudagskvöldið þar sem Íslendingar fögnuðu sigri, 2:1. Bakverðirnir Hörður Árnason og Haukur Heiðar Hauksson leika báðir sinn fyrsta A-landsleik.

Markvörður: Ögmundur Kristinsson

Hægri bakvörður: Haukar Heiðar Hauksson

Vinstri bakvörður: Hörður Árnason

Miðverðir: Hallgrímur Jónasson, fyrirliði og Jón Guðni Fjóluson

Hægri kantur: Rúrik Gíslason

Vinstri kantur: Þórarinn Ingi Valdimarsson

Tengiliðir: Guðmundur Þórarinsson og Rúnar Már Sigurjónsson

Framherjar: Hólmbert Aron Friðjónsson og Jón Daði Böðvarsson

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert