Fyrsti sigur KR kom gegn Fram

Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði fyrir KR gegn Fram.
Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði fyrir KR gegn Fram. Eggert Jóhannesson

KR-ingar fengu í kvöld sín fyrstu stig í Lengjubikar karla í knattspyrnu þegar þeir öttu kappi við Framara í Egilshöll. Grundfirðingurinn Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði eina mark leiksins, 1:0.

Pálmi Rafn Pálmason sem gekk í raðir KR-inga á undirbúningstímabilinu var fyrirliði liðsins í kvöld en Skúli Jón Friðgeirsson og Danirnir Rasmus Christiansen og Sören Frederiksen spiluðu sinn fyrsta mótsleik fyrir KR eftir að þeir komu til félagsins í vetur og voru í byrjunarliði.

Þá var Gary Martin einnig í fyrsta skipti í byrjunarliði Vesturbæinga í Lengjubikarnum í ár.

KR-ingar hafa þrjú stig eftir þrjá leiki en Framarar sitja stigalausir á botninum með engin stig eftir þrjá leiki. 

 Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá Fótbolta.net.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert