Skagamenn urðu í dag fyrsta liðið til að komast í átta liða úrslit Lengjubikars karla í knattspyrnu með 2:1 sigri á Keflavík í Akraneshöllinni í morgun. Garðar Gunnlaugsson og Arsenij Buinickij skoruðu mörk Skagamanna í leiknum.
Leonard Sigurðsson skoraði fyrir Keflvíkinga en mörkin þrjú komu öll á fyrstu tólf mínútum leiksins.
Skagamenn hafa því 15 stig í riðli 3 og eru sjö stigum á undan næsta liði sem er Valur en Hlíðarendamenn eiga þó tvo leiki til góða.
Keflvíkingar hafa sjö stig eftir sex leiki og eru í 3. sæti.
Frá leiknum í morgun.
ÍA-Kef í Akraneshöllinni. 2-1 eftir 40 min. Gaddi Gull og Arseni með mörkin. pic.twitter.com/eOePPb1ba7
— Hjörtur Hjartar (@hjorturh) March 21, 2015