Blikar fóru illa með Íslandsmeistarana

Blikinn Andri Rafn Yeoman með boltann í leiknum í kvöld.
Blikinn Andri Rafn Yeoman með boltann í leiknum í kvöld. Styrmir Kári

Breiðablik batt enda á tap­lausa hrinu Íslands­meist­ara Stjörn­unn­ar í Pepsi-deild karla í knatt­spyrnu í kvöld þegar liðin mætt­ust á Kópa­vogs­velli. Stjarn­an hafði ekki tapaði í 27 leikj­um í röð en þurfti að sætta sig við 3:0-tap í kvöld.

Blikar mættu mun ákveðnari til leiks og strax á 11. mín­útu kom fyrsta markið. Krist­inn Jóns­son var felld­ur inn­an teigs og víta­spyrna dæmd. Á punkt­inn steig Guðjón Pét­ur Lýðsson og skoraði í stöng og inn, hans fjórða á tíma­bil­inu.

Ein­ung­is fjór­um mín­út­um síðar kom annað markið og aft­ur var Krist­inn arki­tekt­inn. Hann átti þá langa send­ingu inn á teig­inn, Arn­ór Ari Atla­son tók bolt­ann á kass­ann og lagði svo í netið. Krist­inn und­ir­bjó einnig þriðja markið sem Elf­ar Freyr Helga­son skoraði á 37. mín­útu, en skot Krist­ins var þá varið fyr­ir fæt­ur Elfars sem skoraði. 3:0 í hálfleik og það fylli­lega verðskuldað.

Stjarn­an gerði tvö­falda skipt­ingu í hálfleik og þá þriðju eft­ir rúm­lega 50 mín­útna leik, þar sem taka átti til í sókn­ar­leik liðsins. Þrátt fyr­ir það varð þeim lítið ágengt fram á við og Blikar fengu hættu­legri færi, en virt­ust þó ekki þurfa að hafa mikið fyr­ir hlut­un­um þar sem allt bit vantaði í leik meist­ar­anna.

Stjarn­an reyndi að pressa und­ir lok­in en heima­menn áttu ekki í vand­ræðum með að brjóta sókn­ir þeirra á bak aft­ur. Leik­ur­inn fjaraði að lok­um út, loka­töl­ur 3:0 fyr­ir Breiðablik og var þetta fyrsta tap Stjörn­unn­ar síðan 28. sept­em­ber 2013 í lokaum­ferð deild­ar­inn­ar það ár.

Fylgst var með gangi mála í beinni lýs­ingu hér á mbl.is, en nán­ar verður fjallað um leik­inn í átta síðna íþrótta­blaði Morg­un­blaðsins á morg­un. Viðtöl birt­ast hér á vefn­um síðar í kvöld.

Fylgst var með gangi mála í öll­um leikj­um kvölds­ins í ÍSLENSKA BOLT­AN­UM Í BEINNI hér á mbl.is.

Breiðablik 3:0 Stjarn­an opna loka
skorar úr víti Guðjón Pétur Lýðsson (11. mín.)
skorar Arnþór Ari Atlason (15. mín.)
skorar Elfar Freyr Helgason (37. mín.)
Mörk
fær gult spjald Guðjón Pétur Lýðsson (42. mín.)
Spjöld
fær gult spjald Brynjar Gauti Guðjónsson (11. mín.)
fær gult spjald Heiðar Ægisson (65. mín.)
mín.
90 Leik lokið
Verðskuldaður sigur Breiðabliks.
90
+3. Ekkert kemur úr hornspyrnunni. Nú fer þetta að verða búið.
90 Breiðablik fær hornspyrnu
+2.
90 Ellert Hreinsson (Breiðablik) á skot sem er varið
+2. Úr teignum en vel varið.
90
Stjarnan reynir að pressa en þetta mun að öllum líkindum fjara bara út. Uppbótartími er 3 mínútur.
87 Davíð K. Ólafsson (Breiðablik) kemur inn á
87 Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik) fer af velli
84 Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik) á skot framhjá
Höskuldur fékk óvæntan bolta innfyrir en vippa hans fór yfir Gunnar og yfir markið líka.
83 Michael Præst (Stjarnan) á skalla sem fer framhjá
Boltinn dettur ofan á þaknetið.
82 Stjarnan fær hornspyrnu
80 Atli Sigurjónsson (Breiðablik) kemur inn á
80 Arnþór Ari Atlason (Breiðablik) fer af velli
80 Ólafur Karl Finsen (Stjarnan) á skot framhjá
Af löngu færi og hátt yfir.
71 Breiðablik fær hornspyrnu
71 Jeppe Hansen (Stjarnan) á skalla sem er varinn
Laflaust.
69
Ekkert kemur úr hornspyrnunni.
69 Breiðablik fær hornspyrnu
67
Veigar Páll tók aukaspyrnu af miðjum vallarhelmingi Blika, en spyrna hans siglir yfir pakkann og framhjá. Dæmigert fyrir Stjörnuna í kvöld.
65 Heiðar Ægisson (Stjarnan) fær gult spjald
Braut tvívegis af sér. Bæði brotin hefðu alveg getað uppskorið gult spjald.
64
Áhorfendur hér í kvöld eru 1.685 talsins.
64 Breiðablik fær hornspyrnu
60 Andri Rafn Yeoman (Breiðablik) á skot sem er varið
Stórkostlegur undirbúningur hjá Kristni Jóns. Þvílíkur leikur sem hann er að eiga í kvöld. Skotið hins vegar laust hjá honum nafna mínum.
59
Færið rann út í sandinn eftir hornspyrnuna.
59 Stjarnan fær hornspyrnu
Fyrsta hornspyrna Stjörnunnar.
58 Veigar Páll Gunnarsson (Stjarnan) kemur inn á
Síðasta skipting Stjörnunnar og það er bætt í sóknina.
58 Þorri Geir Rúnarsson (Stjarnan) fer af velli
57
Ólafur Karl Finsen fellur innan teigs og réttilega ekkert dæmt. Hann fær kaldar kveðjur frá stuðningsmönnum Blika.
51
Skotið frá Kristni fór í vegginn.
51
Blikar fá aukaspyrnu við vítateiginn hægra megin.
50 Breiðablik fær hornspyrnu
49 Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik) á skot sem er varið
Vel gert á vinstri kantinum.
46 Seinni hálfleikur hafinn
Stjarnan gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik og byrjar með boltann í seinni hálfleik.
46 Guðmundur Friðriksson (Breiðablik) kemur inn á
46 Arnór S. Aðalsteinsson (Breiðablik) fer af velli
Vegna höfuðmeiðsla.
46 Ólafur Karl Finsen (Stjarnan) kemur inn á
46 Pablo Punyed (Stjarnan) fer af velli
46 Garðar Jóhannsson (Stjarnan) kemur inn á
46 Halldór Orri Björnsson (Stjarnan) fer af velli
Sást ekki í fyrri hálfleik.
45 Hálfleikur
Verðskulduð forysta Blika gegn meisturunum í hálfleik. Annað verður ekki sagt.
45
Arnór Sveinn liggur enn utan vallar. Guðjón Pétur er kominn í bakvörðinn á meðan.
45
Hörður Árna með fyrirgjöf en í hliðarnetið.
44
Úff! Hörður þrumar boltanum í höfuðið á Arnóri Sveini sem steinliggur. Hann er nýkominn til baka eftir höfuðmeiðsli, og menn vita hvað svona endurtekin höfuðhögg geta verið hættuleg. Hann fær aðhlynningu en við vonum það allra besta. Það getur ekki verið að hann spili meira hér í dag, þó væri ekki nema bara af öryggisástæðum.
42 Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðablik) fær gult spjald
Guðjón Pétur kemur boltanum í markið en er flaggaður rangstæður. Ég er ekki viss um að það hafi verið réttur dómur, en Guðjón fær gult fyrir að sparka boltanum í burtu - í netið.
37 MARK! Elfar Freyr Helgason (Breiðablik) skorar
3:0 - Kristinn Jónsson tók hornspyrnu, fékk boltann aftur út og lætur vaða. Gunnar varði boltann fyrir fætur Elfars sem skoraði.
37 Kristinn Jónsson (Breiðablik) á skot sem er varið
37 Breiðablik fær hornspyrnu
Stórhættuleg fyrirgjöf sem Heiðar skallar afturfyrir.
35
Stuðningsmenn Blika syngja til Ólafs Karls Finsen og spyrja hvar hann sé. Smá skot í gangi þar.
31
Brynjar Gauti reynir mikið langar sendingar úr vörn Stjörnunnar. Ég held að fáar, ef einhver, hafi ratað á samherja.
29
Boltinn barst aftur út á Kristin Jóns sem sendi fallegan bolta fyrir markið en Gunnar greip hann upp við vinkilinn.
29 Breiðablik fær hornspyrnu
28 Oliver Sigurjónsson (Breiðablik) á skot framhjá
Skotið fer í vegginn og framhjá.
28
Blikar fá aukaspyrnu af um 30 metra færi. Fullkomin staða fyrir Guðjón Pétur.
27 Arnar Már Björgvinsson (Stjarnan) á skot sem er varið
Stjörnumenn komast að vítateig Blika, Arnar reynir skot en Elfar Freyr hendir sér fyrir það.
22
Þess má geta að Stjarnan hefur ekki unnið á þessum velli í efstu deild í 21 ár. Liðið hefur hins vegar ekki tapað núna í 27 leikjum í röð í deildinni. Ætli annað hvort láti undan hér í kvöld?
19
Það er mikill vandræðagangur á Stjörnumönnum. Nú misreikna bæði Heiðar Ægis og Gunnar í markinu boltann, sem endar með að sá færeyski kýlir hann í burtu - Það er að segja boltann, ekki Heiðar.
17
Stjörnumenn horfa hver á annan og skilja ekkert hvað er í gangi. Það er einmitt málið - það er ekkert í gangi hjá þeim.
15 MARK! Arnþór Ari Atlason (Breiðablik) skorar
2:0 - Frábært mark! Há sending frá vinstri kanti frá Kristni Jóns inn á teiginn, Arnór tók boltann á kassann og lagði hann svo framhjá Gunnari.
13
Þetta mark var alveg verðskuldað miðað við þessar fyrstu mínútur. Það er enginn taktur í spili Stjörnunnar.
11 MARK! Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðablik) skorar úr víti
1:0 - Guðjón Pétur skorar, stöngin inn. Hans fjórða mark í sumar.
11 Brynjar Gauti Guðjónsson (Stjarnan) fær gult spjald
11 Breiðablik fær víti
Hárrétt. Kristinn Jóns felldur.
8
Þarna átti Ellert að gera betur! Arnór Sveinn lagði boltann í fyrsta inn á milli Harðar og Daníels í vörn Stjörnunnar, en Ellert missti boltann of langt frá sér.
5
Þetta byrjar rólega, en Blikar eru meira með boltann. Þeir eru mikið að reyna háa bolta upp kantana en þeirra öftustu menn eru svolítið að misreikna rokið og boltinn endar yfirleitt útaf.
1 Leikur hafinn
Heimamenn byrja með boltann og sækja að félagsheimili sínu í fyrri hálfleik.
0
Nú eru tíu mínútur til stefnu og leikmenn komnir inn í klefa til síðasta undirbúnings. Stúkan er þéttsetin hér fyrir neðan mig og enn er fólk að flæða inn. Flott sunnudagskvöld framundan.
0
Leikmenn sem og dómarar hita upp í bolum merktum "Vertu næs" - og styrkja þar með við verkefni Rauða krossins um að útrýma fordómum úr samfélaginu.
0
Það er áhugavert að Ólafur Karl Finsen sé settur á bekkinn hjá Stjörnunni, en hann hefur skorað tvö mörk í fyrstu fimm leikjunum. Hann komst í fréttirnar í vikunni fyrir að fara inn í klefann hjá Blikum og láta greipar sópa ef svo má að orði komast, svo það er spurning hvort Rúnar Páll sé að forðast einhverja pústra með því að hafa hann utan liðsins.
0
Kópavogsdjúsinn frægi er kominn í hús, en það er eitthvað annað með internetið sem virðist koma og fara. Eins gott að það lagist fyrir leik.
0
Blikar stilla upp sama liði og lagði ÍA í síðustu umferð, en hjá Stjörnunni eru 3 breytingar eftir jafnteflið við FH í síðustu umferð.

Veigar Páll Gunnarsson, Garðar Jóhannsson og Ólafur Karl Finsen setjast allir á bekkinn, en inn koma þeir Pablo Punyed, Arnar Már Bjögvinsson og Jeppe Hansen.

0
Þjálf­ar­ar Breiðabliks og Stjörn­unn­ar hafa báðir skorað tví­veg­is í viður­eign­um liðanna í efstu deild. Arn­ar Grét­ars­son skoraði sig­ur­mark Blika í Garðabæ, 1:0, árið 1991 og aft­ur mark í 3:1 sigri í Garðabæ árið 1994. Rún­ar Páll Sig­munds­son skoraði fyr­ir Stjörn­una gegn Breiðabliki í deild­inni árin 1996 og 2000, og í bæði skipt­in í leikj­um sem enduðu 3:3.
0
Stjarn­an hef­ur ekki unnið leik gegn Breiðabliki í efstu deild á Kópa­vogs­velli í 21 ár, eða frá ár­inu 1994. Þangað hef­ur Garðabæj­arliðið komið í átta heim­sókn­ir frá þeim tíma og Breiðablik hef­ur unnið sex leikj­anna og tvisvar orðið jafn­tefli. Leik­ur liðanna á Kópa­vogs­velli árið 1994 endaði með 2:1 sigri Stjörn­unn­ar þar sem Eyjamaður­inn Leif­ur Geir Haf­steins­son skoraði bæði mörk liðsins en Gunn­laug­ur Ein­ars­son gerði mark Blika.
0
Liðin eru stigi á eftir FH og KR sem eru efst. Blikar unnu ÍA 1:0 á Akranesi í síðustu umferð á sama tíma og Stjarnan gerði 1:1-jafntefli við FH á heimavelli.
0
Hér mætast einu lið Pepsideildarinnar sem enn eru taplaus. Stjarnan hefur raunar ekki tapað í deildinni í 27 leikjum í röð og Breiðablik hefur ekki tapað mótsleik á árinu 2015, innan- eða utanhúss.
0
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu mbl.is frá leik Breiðabliks og Stjörnunnar!
Sjá meira
Sjá allt

Breiðablik: (4-3-3) Mark: Gunnleifur Gunnleifsson. Vörn: Arnór S. Aðalsteinsson (Guðmundur Friðriksson 46), Elfar Freyr Helgason, Damir Muminovic, Kristinn Jónsson. Miðja: Arnþór Ari Atlason (Atli Sigurjónsson 80), Oliver Sigurjónsson, Andri Rafn Yeoman. Sókn: Ellert Hreinsson, Höskuldur Gunnlaugsson (Davíð K. Ólafsson 87).
Varamenn: Aron Snær Friðriksson (M), Kári Ársælsson, Olgeir Sigurgeirsson, Atli Sigurjónsson, Gunnlaugur H. Birgisson, Davíð K. Ólafsson, Guðmundur Friðriksson.

Stjarnan: (4-3-3) Mark: Gunnar Nielsen. Vörn: Heiðar Ægisson, Brynjar Gauti Guðjónsson, Hörður Árnason. Miðja: Þorri Geir Rúnarsson (Veigar Páll Gunnarsson 58), Michael Præst, Pablo Punyed (Ólafur Karl Finsen 46). Sókn: Arnar Már Björgvinsson, Jeppe Hansen, Halldór Orri Björnsson (Garðar Jóhannsson 46).
Varamenn: Sveinn Sigurður Jóhannesson (M), Aron R. Heiðdal, Veigar Páll Gunnarsson, Ólafur Karl Finsen, Jón Arnar Barðdal, Þórhallur Kári Knútsson, Garðar Jóhannsson.

Skot: Breiðablik 9 (7) - Stjarnan 4 (2)
Horn: Stjarnan 2 - Breiðablik 7.

Lýsandi: Andri Yrkill Valsson
Völlur: Kópavogsvöllur
Áhorfendafjöldi: 1.685

Leikur hefst
31. maí 2015 20:00

Aðstæður:
Sólin skín og léttur andvari á annað markið. Völlurinn ágætur en sandaður hér og þar.

Dómari: Þorvaldur Árnason
Aðstoðardómarar: Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert