Telma Hjaltalín Þrastardóttir tryggði Breiðabliki langþráðan sigur á Stjörnunni í kvöld í stórleik umferðarinnar í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu en lokatölur urðu 1:0.
Markið kom eftir frábæran undirbúning Fanndísar Friðriksdóttur sem tók á rás upp völlinn frá miðjum eigin vallarhelmingi, náði góðri fyrirgjöf á Telmu sem kláraði færið vel en markið kom á 42. mínútu leiksins.
Smelltu hér til þess að sjá markið.
Ítarlega umfjöllun mbl.is um leikinn má sjá hér.