„Þetta eru augljóslega mikil vonbrigði, sérstaklega þar sem mér fannst við ekki eiga skilið að tapa þessum leik. Við gáfum ykkur síðara markið og við getum því einungis verið reiðir út í okkur sjálfa,“ sagði Tomáš Rosický, fyrirliði Tékklands, við íslenska blaðamenn að leiknum loknum í Laugardalnum í kvöld.
Hann sagði ekkert hafa komið sér á óvart í leik íslenska liðsins en Tékkar unnu fyrri leik liðanna í riðlinum 2:1 ytra.
Íslensku fjölmiðlarnir fengu stuttan tíma til að ræða við Rosický í kvöld og fór spjallið fram á ensku eins og heyra má í myndskeiðinu hér að ofan.