Breiðablik er Íslandsmeistari

Breiðablik er Íslands­meist­ari kvenna í knatt­spyrnu  í sextánda skipti og í fyrsta skipti í tíu ár eft­ir sig­ur á Þór/​KA, 2:1, í 17. um­ferð úr­vals­deild­ar kvenna í knatt­spyrnu, Pepsi-deild­ar­inn­ar, á Þór­svell­in­um í dag.

Breiðablik er með 47 stig en Stjarn­an er með 42 stig eft­ir sig­ur á Þrótti í leik sem einnig var að ljúka á Val­bjarn­ar­velli. Sel­foss er með 33 stig og Þór/​KA 30 stig í næstu sæt­um á eft­ir.

Breiðabliksliðið mætti til Ak­ur­eyr­ar vel stutt að grænklædd­um, syngj­andi og trallandi Kópa­vogs­bú­um. Blikar lentu und­ir snemma leiks þegar Lillý Rut Hlyns­dótt­ir skoraði og áttu í mesta basli all­an fyrri hálfleik­inn.

Dæmið snér­ist við í síðari hálfleik og mörk frá Telmu Hjaltalín og Fann­dísi Friðriks­dótt­ur tryggðu stig­in sem vantaði upp á til að landa þeim stóra. Blikar eru vel að titl­in­um komn­ar, hafa aðeins tapað fjór­um stig­um í sum­ar og fengið á sig fjög­ur mörk.

Fylgst er með hinum leikj­un­um í um­ferðinni hér.

Þór/​KA 1:2 Breiðablik opna loka
skorar Lillý Rut Hlynsdóttir (25. mín.)
Mörk
skorar Telma Hjaltalín Þrastardóttir (47. mín.)
skorar Fanndís Friðriksdóttir (62. mín.)
mín.
90 Leik lokið
Blikar eru Íslandsmeistarar eftir tíu ára bið. Til hamingju Breiðablik.
90 Sandra María Jessen (Þór/KA) á skalla sem er varinn
Laus skalli, beint á Sonný.
90 Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) á skot sem er varið
Hörkumarkvarsla.
89 Ingibjörg Sigurðardóttir (Breiðablik) kemur inn á
89 Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik) fer af velli
84 Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA) kemur inn á
84 Lára Einarsdóttir (Þór/KA) fer af velli
83 Breiðablik fær hornspyrnu
82 Svava Rós Guðmundsdóttir (Breiðablik) á skot framhjá
Þetta var fyrirgjöf en hættan var til staðar.
80 Aldís Kara Lúðvíksdóttir (Breiðablik) á skot sem er varið
78 Klara Lindberg (Þór/KA) á skot sem er varið
Bananaskot sem Sonný tók í fangið.
75 Hallbera Guðný Gísladóttir (Breiðablik) á skot sem er varið
Blikar eru kortéri frá titlinum. Það er nákvæmlega ekkert sem bendir til þess að Þór/KA bíti frá sér.
74 Anna Rakel Pétursdóttir (Þór/KA) kemur inn á
74 Ágústa Kristinsdóttir (Þór/KA) fer af velli
71 Rakel Hönnudóttir (Breiðablik) á skot sem er varið
71 Roxanne Kimberly Barker (Þór/KA) varði
Telma komin í færi en Roxy á gott úthlaup.
67
Blikar halda uppi látlausri sókn.
62 MARK! Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik) skorar
1:2 Svava Rós með góða fyrirgjöf af hægri kantinum sem Fanndís afgreiðir í fjærhornið. Blikar eru að tryggja sér titilinn.
58 Svava Rós Guðmundsdóttir (Breiðablik) á skot í stöng
Góð rispa en boltinn berst svo til Roxy.
57 Klara Lindberg (Þór/KA) á skot framhjá
Gott skot eftir snarpa sókn.
56 Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik) á skot framhjá
Hátt yfir.
54 Sandra María Jessen (Þór/KA) á skot sem er varið
Auðvelt, en boltinn var á leið framhjá markinu.
52
Hallbera brýtur illa á Gígju sem ligguur vönkuð í grasinu.
51 Rakel Hönnudóttir (Breiðablik) á skot framhjá
Hátt yfir. Blikar eru heldur betur hrokknir í gang.
49 Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik) á skot sem er varið
Roxy gerði vel þarna.
47 MARK! Telma Hjaltalín Þrastardóttir (Breiðablik) skorar
1:1 Glæsilegt skot upp í samskeytin sem Roxy átti ekki séns í. Nú er staðan góð hjá Blikum.
46 Seinni hálfleikur hafinn
46 Hildur Sif Hauksdóttir (Breiðablik) kemur inn á
Systraskipting.
46 Jóna Kristín Hauksdóttir (Breiðablik) fer af velli
46 Aldís Kara Lúðvíksdóttir (Breiðablik) kemur inn á
46 Fjolla Shala (Breiðablik) fer af velli
45 Hálfleikur
Þór/KA búið að vera í sókn lungann af leiknum. Líklegt má telja að dæmið snúist við í seinni hálfleiknum þegar Blikar sækja undan vindinum.
45 Þór/KA fær hornspyrnu
Sandra spyrnir beint aftur fyrir.
45 Lillý Rut Hlynsdóttir (Þór/KA) á skot í stöng
Blikar bjarga svo í horn.
45 Þór/KA fær hornspyrnu
39 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (Breiðablik) á skot sem er varið
Frábær sprettur hjá Andreu en skotið fór beint á Roxy.
37 Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik) á skot sem er varið
Þetta var ágætt skot úr þröngri stöðu.
34
Þór/KA átti að fá augljósa hornspyrnu en þeir svartklæddu lokuðu augunum samtímis.
31 Gígja Valgerður Harðardóttir (Þór/KA) á skot sem er varið
Sonný hirðir boltann léttilega.
30 Klara Lindberg (Þór/KA) á skot framhjá
Fín hugmynd að skjóta en boltinn fór hátt yfir.
28
Silvía á stórhættulega fyrirgjöf en Klara Lindberg kemst ekki í boltann.
25 MARK! Lillý Rut Hlynsdóttir (Þór/KA) skorar
1:0 Lára tekur lága hornspyrnu á nærstöngina. Kayla er fyrst í boltann, kemur honum á markið þar sem Lillý Rut lúrir og potar boltanum yfir línuna.
25 Þór/KA fær hornspyrnu
24 Sandra María Jessen (Þór/KA) á skot sem er varið
23
Fanndís Friðriksdóttir hefur lítið sést í þessum leik.
21 Telma Hjaltalín Þrastardóttir (Breiðablik) á skot framhjá
16 Þór/KA fær hornspyrnu
Sonný hirðir boltann, vel gert hjá henni.
16 Klara Lindberg (Þór/KA) á skot sem er varið
14 Lillý Rut Hlynsdóttir (Þór/KA) á skalla sem fer framhjá
Það var lítil hætta þarna.
13 Þór/KA fær hornspyrnu
8 Breiðablik fær hornspyrnu
Telma dugleg að fiska þetta. Roxy grípur svo boltann.
4 Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik) á skot sem er varið
Laust skot.
1 Leikur hafinn
Blikar eru á móti vindi í fyrri hálfleiknum.
0
Breiðablik er efst með 44 stig og verður Íslandsmeistari með sigri í dag en liðið er með fimm stiga forskot á Stjörnuna sem er með 39 stig og mætir Þrótti á sama tíma á Valbjarnarvelli. Þór/KA og Selfoss eru svo í þriðja og fjórða sæti með 30 stig hvort.
0
Velkomin með mbl.is á Þórsvöllinn þar sem Þór/KA tekur á móti Breiðabliki í 17. og næstsíðustu umferð Pepsi-deildar kvenna.
Sjá meira
Sjá allt

Þór/KA: (4-3-3) Mark: Roxanne Kimberly Barker. Vörn: Ágústa Kristinsdóttir (Anna Rakel Pétursdóttir 74), Lillý Rut Hlynsdóttir, Lára Einarsdóttir (Andrea Mist Pálsdóttir 84). Miðja: Silvía Rán Sigurðardóttir, Karen Nóadóttir, Kayla Grimsley. Sókn: Gígja Valgerður Harðardóttir, Klara Lindberg, Sandra María Jessen.
Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (M), Anna Rakel Pétursdóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir, Sara Skaptadóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Saga Líf Sigurðardóttir, Andrea Mist Pálsdóttir.

Breiðablik: (4-3-3) Mark: Sonný Lára Þráinsdóttir. Vörn: Fjolla Shala (Aldís Kara Lúðvíksdóttir 46), Málfríður Erna Sigurðardóttir, Guðrún Arnardóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir. Miðja: Jóna Kristín Hauksdóttir (Hildur Sif Hauksdóttir 46), Rakel Hönnudóttir. Sókn: Svava Rós Guðmundsdóttir, Telma Hjaltalín Þrastardóttir, Fanndís Friðriksdóttir (Ingibjörg Sigurðardóttir 89).
Varamenn: Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir (M), Hildur Sif Hauksdóttir, Steinunn Sigurjónsdóttir, Aldís Kara Lúðvíksdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir.

Skot: Breiðablik 14 (10) - Þór/KA 13 (10)
Horn: Þór/KA 5 - Breiðablik 2.

Lýsandi: Einar Sigtryggsson
Völlur: Þórsvöllur

Leikur hefst
7. sept. 2015 17:30

Aðstæður:
Leiðinda hvassviðri að sunnan, skýjað og 16°C hiti.

Dómari: Þorvaldur Árnason
Aðstoðardómarar: Sigurður Hjörtur Þrastarson og Marinó Steinn Þorsteinsson

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert