Lokahnykkurinn framundan hjá landsliðinu

Aron Einar Gunnarsson verður í leikbanni gegn Lettum.
Aron Einar Gunnarsson verður í leikbanni gegn Lettum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á föstudaginn verður tilkynnt hverjir verða í leikmannahópi Íslands í síðustu tveimur leikjunum í undankeppni EM karla í knattspyrnu. 

Fyrir dyrum eru tveir síðustu leikirnir í riðlinum, gegn Lettlandi í Laugardalnum 10. október og gegn Tyrkjum ytra 13. október. Ísland vann bæði þessi lið 3:0 í fyrstu tveimur leikjum undankeppninnar. 

Ísland hefur tryggt sér sæti á EM en ekki liggur fyrir hvort liðið hafni í 1. eða 2. sæti riðilsins. Tékkland er einnig öruggt á EM. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert