Ingvar Jónsson landsliðsmarkvörður í knattspyrnu er genginn í raðir norska B-deildarliðsins Sandefjord og hefur gengið frá þriggja ára samningi við liðið að því er fram kemur á vef félagsins í dag.
Ingvar var samningsbundinn Start sem hann gekk til liðs fyrir síðasta tímabil frá Stjörnunni en hann var síðan lánaður til norska B-deildarliðsins Sandnes Ulf.
Sandefjord féll úr úrvalsdeildinni í haust, eftir eins árs dvöl, en liðið hefur tekið stefnuna á að endurheimta sæti sitt í deildinni.
Ingvar lék báða landsleiki Íslands fyrr í þessum mánuði, gegn Finnlandi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum, og er í harðri baráttu um sæti í íslenska landsliðshópnum fyrir Evrópukeppnina í Frakklandi í sumar.