Húsvíkingurinn Hallgrímur Jónasson, miðvörður og fyrirliði danska úrvalsdeildarliðsins OB, er í liði marsmánaðar hjá danska blaðinu Tipsbladet.
Hallgrímur hefur spilað vel í hjarta varnarinnar hjá OB en liðið fékk aðeins á sig eitt mark í þremur leikjum liðsins í deildinni í mars. OB er í 6. sæti deildarinnar en með Hallgrími hjá OB leikur Ari Freyr Skúlason.
Hallgrímur, sem er þrítugur að aldri, hefur spilað 15 leiki með íslenska A-landsliðinu og hefur í þeim skorað 3 mörk. Hann lék síðast með því gegn Bandaríkjamönnum í lok janúar og er í baráttu um að komast í hópinn sem fer á EM í sumar.