Lýkur langri bið Blika í dag?

Bergsveinn Ólafsson, Höskuldur Gunnlaugsson og Kassim Doumbia í leik liðanna …
Bergsveinn Ólafsson, Höskuldur Gunnlaugsson og Kassim Doumbia í leik liðanna fyrr í sumar. mbl.is/Golli

FH-ing­ar eiga mögu­leika á að ná níu stiga for­skoti í Pepsi-deild karla í knatt­spyrnu í dag þegar þeir taka á móti Breiðabliki í Kaplakrika klukk­an 17.

FH er með 37 stig, Fjöln­ir komst í gær í annað sætið með 31 stig með því að sigra Vík­ing R. og Breiðablik er með 30 stig í þriðja sæt­inu. Kópa­vogsliðið gæti með sigri minnkað for­skot Hafn­ar­fjarðarliðsins niður í fjög­ur stig.

Sag­an er ekki með Breiðabliki, en 21 ár er síðan fé­lagið hef­ur fagnað útisigri gegn FH í efstu deild. Það var árið 1995 þegar Blikar unnu 4:2 í Kaplakrika. Rastislav Lazorik skoraði þá þrennu fyr­ir Breiðablik en Hörður Magnús­son gerði bæði mörk FH.

Frá þeim tíma hafa liðin mæst 11 sinn­um í Kaplakrika í deild­inni og FH hef­ur unnið sex leikj­anna en fimm hafa endað með jafn­tefli. Liðin hafa skilið jöfn þar und­an­far­in þrjú ár. Í fyrra stóð það þó afar tæpt hjá FH-ing­um því Kassim Doumb­ia jafnaði met­in í upp­bót­ar­tíma eft­ir að Arnþór Ari Atla­son kom Blik­um yfir. Bjarni Þór Viðars­son fékk rauða spjaldið rétt fyr­ir leiks­lok en tíu FH-ing­ar knúðu fram jöfn­un­ar­mark engu að síður.

Leik­ir dags­ins í Pepsi-deild karla eru þess­ir:

17.00 FH - Breiðablik
17.00 Fylk­ir - Vík­ing­ur Ó.
17.00 Þrótt­ur R. - ÍA
20.00 Stjarn­an - Val­ur

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 2 2 0 0 4:2 2 6
2 Noregur 2 1 0 1 2:2 0 3
3 Ísland 2 0 1 1 2:3 -1 1
4 Sviss 2 0 1 1 1:2 -1 1
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
04.04 16:45 Ísland : Noregur
04.04 19:00 Sviss : Frakkland
08.04 16:45 Ísland : Sviss
08.04 18:00 Noregur : Frakkland
30.05 18:00 Noregur : Ísland
30.05 19:10 Frakkland : Sviss
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert