„Auðvitað er þetta hundfúlt en þeir vildu þetta meira en við og þannig endaði þetta,“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Valsmanna, eftir leikinn gegn ÍBV í Vestmannaeyjum.
„Við spiluðum lélegan varnarleik en vorum ágætir í sókninni en höfum engan áhuga á þessu.“
Ólafur sagði að það ætti ekki að vera erfitt að ná upp baráttu í liðinu þótt ekki hafi verið að miklu að keppa fyrir Valsmenn en það hafi ekki tekist í dag:
„Eyjamenn komu mér ekkert á óvart. Þeir voru að berjast fyrir lífi sínu og við vissum það allan tímann en við komum ekki undirbúnir til leiks.“