Ekta vinnusigur

Hildur Antonsdóttir var öflug á miðjunni fyrir Breiðablik í sigri …
Hildur Antonsdóttir var öflug á miðjunni fyrir Breiðablik í sigri á Íslandsmeisturum Stjörnunnar. mbl.is/Kristinn

„Mér fannst þetta góður sigur, ekta vinnusigur og  við náðum að koma inn góðu marki,“  sagði Hildur Antonsdóttir, sem átti mikinn þátt í 1:0 sigri á Breiðabliks á Stjörnunni í kvöld þegar 8. umferð efstu deildar kvenna í knattspyrnu hófst.

Hildur var óþreytandi og vinnusöm á miðjunni, gaf sig í alla bolta.  „Við ætluðum bara að berjast fyrst og fremst en hafa gaman af þessu og spila okkar bolta. Ég held að við höfum slakað aðeins á í seinni hálfleik og að sama skapi bætti Stjarnan aðeins í, var orðin líkleg til einhvers í lokin en við náðum sigri að lokum og það skiptir öllu máli.“

Sigur Breiðabliks kom liðinu upp í annað sæti deildarinnar en Þór/KA hefur náð góðu forskoti.  Hildur lætur það ekki slá sig útaf laginu. „Við verðum að halda áfram og hugsa um okkur sjálfar, taka bara einn leik fyrir í einu sem er markmiðið nú,“ bætti Hildur við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert