„Þetta eru söluhæstu leikirnir árlega og þeir seljast í milljónum eintaka,“ segir Bjarki Þór Jónsson hjá Nördi Norðursins um FIFA-tölvuleikina. Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu verður í næstu fjórum útgáfum af leiknum og segir Bjarki það frábærar fréttir fyrir landsliðið.
Eins og greint var frá í gær verður íslenska karlalandsliðið í FIFA 18, næstu útgáfu þessa vinsælasta íþróttatölvuleiks heims, sem gefinn verður út í lok mánaðarins. Strákarnir okkar verða svo einnig í FIFA 19, FIFA 20 og FIFA 21.
Bjarki bendir á að vinsældir leikjanna megi rekja til þess að þeir nái til tveggja hópa; tölvunörda og íþróttanörda. „Margir sem spila ekki alla tölvuleiki spila FIFA. Einnig spila þeir leikinn sem fylgjast líltið sem ekkert með fótbolta. Þetta nær því inn í báða hópa.“
Bjarki segir að markaðsfræðilega sé þetta auðvitað mjög gott fyrir íslenska landsliðið en bendir á að liðið hafi sjálft kynnt sig rækilega fyrir heimsbyggðinni á Evrópumótinu í fyrra. „Þegar komið er í FIFA er þetta komið í ódauðleikann og þeir lifa áfram í gegnum tölvuleikinn. Það er ákveðin viðurkenning í leikjaheiminum sem felst í því að komast í þennan leik,“ segir Bjarki.
Algengt sé að spilarar leiki sér með liðum sem þeir þekki lítið til og fái talsverðan áhuga á þeim liðum í gegnum leikinn. „Menn fá að kynnast nöfnum manna, fá að vita hvernig þeir líta út og fleira slíkt. Þetta verður stundum til þess að menn eignast uppáhaldslið,“ segir Bjarki og bætir við að ekki skemmi fyrir að flestir hafi gaman af „litlum“ liðum sem nái góðum árangri.
„Þetta er eins og sagan um Cool Runnings,“ segir Bjarki en árið 1988 tefldi Jamaíka í fyrsta sinn fram bobsleðaliði á vetrarólympíuleikunum í Calgary. Vakti það mikla athygli enda er landið þekkt fyrir allt annað en vetraríþróttir og var bíómyndin Cool Runnings meðal annars gerð um afrekið. „Sagan um litlu þjóðina sem nær einhverju stóru er alltaf sjarmerandi.“
Bjarki býst við því að tilkoma strákanna okkar í leikinn eigi án vafa eftir að auka vinsældir þessa gríðarlega vinsæla leiks. „Ég ætla að skjóta á að það verði slegið sölumet á FIFA á Íslandi. Ég myndi þora að veðja upp á það.“