Róbert Haraldsson mun ekki halda áfram þjálfun Grindavíkur í knattspyrnu kvenna. Félagið sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þess efnis að hann hafi ákveðið að hætta með liðið.
Grindavík komst upp í efstu deild fyrir leiktíðina og hafnaði í 7. sæti í Pepsi-deildinni í sumar.