Lokahópur íslenska U21-árs landsliðsins í knattspyrnu fyrir lokakeppni EM 2021 sem hefst 25. mars í Ungverjalandi gæti tekið einhverjum breytingum áður en mótið hefst.
Þetta staðfesti Davíð Snorri Jónasson, þjálfari íslenska liðsins, í samtali við 433.is í dag.
Lokahópurinn birtist óvænt á heimasíðu UEFA í morgun en til stóð að kynna lokahópinn á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ á fimmtudaginn kemur.
„Við staðfestum hópinn á fimmtudaginn, við þurfum alltaf að skila inn beinagrind að hópnum til UEFA. Við erum enn að vinna hlutina með A-landsliði karla,“ sagði Davíð Snorri í samtali við 433.is.
„Þetta er í raun það eina sem ég get sagt, við kynnum lokahópinn á fimmtudag og það gætu orðið breytingar á þeim hópi sem er þarnam,“ bætti Davíð Snorri við.
Það verður að teljast afar ólíklegt að stórar breytingar verði gerðar á hópnum fyrir fimmtudaginn en þar sem Alfons Sampsted og Arnór Sigurðsson eru hvorugir í hópnum má reikna með því að þeir verði með A-landsliðinu sem hefur leik í undankeppni HM á sama tíma.