Ísak byrjar gegn Rússum

Willum Þór Willumsson og Hörður Ingi Gunnarsson eru báðir í …
Willum Þór Willumsson og Hörður Ingi Gunnarsson eru báðir í byrjunarliði íslenska liðsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ísak Bergmann Jóhannesson er í byrjunarliði íslenska U21-árs landsliðsins í knattspyrnu sem mætir Rússlandi í fyrsta leik íslenska liðsins í lokakeppni EM í Györ í dag.

Patrik Sigurður Gunnarsson ver mark íslenska liðsins og Kolbeinn Þórðarson, Róbert Orri Þorkelsson, Ari Leifsson og Hörður Ingi Gunnarsson eru varnarmenn.

Þá eru þeir Willum Þór Willumsson, Alex Þór Hauksson og Stefán Teitur Þórðarsson á miðjunni.

Jón Dagur Þorsteinsson, fyrirliði liðsins, er á vinstri kantinum, Sveinn Aron Guðjohnsen fremstur og Ísak Bergmann á hægri kantinum.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert