Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur rétt fram sáttarhönd í deilum við Albert Guðmundsson, leikmann ítalska B-deildar liðsins Genoa.
Fréttablaðið greinir frá því að Arnar Þór hafi tekið upp símtólið og hringt í Albert með það fyrir augum að höggva á hnútinn á deilur þeirra í millum.
Albert hefur ekki verið valinn í leikmannahópinn í undanförnum verkefnum A-landsliðsins.
Hefur Arnar Þór látið hafa það eftir sér að ástæðan fyrir því að Albert hafi ekki verið valinn í landsliðshópinn upp á síðkastið hafi verið slæmt hugarfar í verkefnum á undan og því væri honum ekki stætt á að velja Albert í hópinn.
Arnar Þór mun tilkynna landsliðshópinn fyrir leiki gegn Bosníu og Hersegóvínu og Liechtenstein í undankeppni EM 2024 á morgun og er nú ekki loku fyrir það skotið að Albert, sem hefur leikið afar vel fyrir Genoa á tímabilinu, verði hluti af honum.