Robben ekki með Hollendingum

Arjen Robben, til hægri, missir af stórleiknum gegn Ítölum.
Arjen Robben, til hægri, missir af stórleiknum gegn Ítölum. Reuters

Arjen Robben, kantmaðurinn öflugi, verður ekki með Hollendingum þegar þeir mæta Ítölum á morgun í fyrsta leik liðanna á Evróupmótinu í knattspyrnu.

Robben meiddist í nára á æfingu í gær og Marco van Basten, þjálfari Hollendinga var mjög vonsvikinn. "Þetta eru mikil vonbrigði fyrir Arjen og slæmt fyrir liðið því annar vinstri kantmaður okkar, Ryan Babel, er líka frá keppni. Við vonum að Arjen verði tilbúinn í slaginn á ný síðar í keppninni," sagði van Basten.

Þá er spurning hvort Robin van Persie nái að spila með Hollendingum, sem og bakvörðurinn Mario Melchiot, en þeir eru báðir tæpir vegna meiðsla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert