Frakkland og Rúmenía gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leiknum í C-riðli Evrópukeppninnar í knattspyrnu í Zurich í Sviss í dag.
Úrslitin eru nokkuð óvænt, enda voru Frakkar taldir eitt sigurstranglegasta liðið í keppninni og stigin gætu reynst þeim dýrkeypt í þessum erfiða riðli sem kallaður hefur verið "dauðariðillinn". Þar eru einnig Ítalía og Holland sem mætast kl. 18.45.
Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is og hana má skoða hér.