Svíar sigruðu Evrópumeistara Grikkja á sannfærandi hátt, 2:0, í Salzburg í Austurríki í kvöld en þetta var seinni leikur dagsins í D-riðli Evrópukeppninnar í knattpyrnu.
Zlatan Ibrahimovic kom Svíum yfir með glæsilegu marki á 67. mínútu og fimm mínútum síðar bætti Petter Hansson við marki, 2:0.
Spánverjar unnu Rússa, 4:1, í fyrri leiknum í dag.
Fylgst var með gangi mála hjá Svíum og Grikkjum í beinni textalýsingu hér á mbl.is. Smellið hér.