Portúgal áfram og Sviss úr leik

Portúgalar gátu haldið áfram að fagna eftir leik Tyrklands og …
Portúgalar gátu haldið áfram að fagna eftir leik Tyrklands og Sviss. Reuters

Sigur Tyrkja á Svisslendingum í kvöld, 2:1, þýðir að Portúgalar eru fyrstir til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu en Svisslendingar eru fyrstir til að falla úr keppni.

Portúgal er með 6 stig, Tékkar og Tyrkir 3 en Sviss ekkert. Tékkar og Tyrkir mætast því hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni á sunnudaginn en leikur Portúgals og Sviss hefur í raun enga þýðingu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert