Luiz Felipe Scolari, þjálfari Portúgal gerir fimm breytingar á byrjunarliði sínu frá því í síðasta leik, fyrir leik sinna manna gegn Sviss á Evrópumótinu í knattspyrnu í dag.
„Við þurfum að líta til næstu leikja. Til að ná sem bestum úrslitum verðum við að spila á fleiri mönnum úr hópnum. Ég reikna með að gera fimm breytingar á liðinu frá því í síðasta leik. Ég get ekki gert 10-11 breytingar, því ég verð að halda ákveðnu jafnvægi á liðinu. Þetta er þó gott tækifæri til að gefa leikmönnum tækifæri á að láta ljós sitt skína.“