Austurríki og Þýskaland mætast í kvöld í hálfgerðum úrslitaleik um það hvort liðið fylgir Króatíu upp úr B-riðli Evrópukeppninnar í knattspyrnu. Stemmningin í Vínarborg magnast smám saman og í gær fór fram upphitunarleikur í strandbolta milli austurrískra og þýskra klámmyndaleikkvenna.
Sóknarleikurinn var hafður í hávegum og höfðu þær austurrísku betur, 10:5, og vonuðust þær til þess að þessi úrslit yrðu löndum sínum hvatning í erfiðum leik í kvöld.