Rússar voru rétt í þessu að leggja Svía að velli, 2:0, með mörkum frá Roman Pavlyuchenko og Andrey Arshavin, og eru því komnir í átta liða úrslit Evrópumótsins ásamt Spánverjum sem unnu Grikki 2:1 og enduðu því með fullt hús stiga í D-riðli.
Rússar eiga erfiðan leik fyrir höndum við Hollendinga þar sem Guus Hiddink þjálfari Rússa mætir löndum sínum, og Spánverjar eiga ekki síður erfitt verkefni fyrir höndum því þeir mæta Ítölum.
Atvikalýsingu úr leik Rússa og Svía má lesa hér, og úr leik Grikkja og Spánverja hér.